Sáttamiðlun
Hvað er sáttamiðlun?
Sáttamiðlun er aðferð til að leysa ágreining þar sem tveir eða fleiri aðilar taka sjálfviljugir þátt. Markmið sáttamiðlunar er að leita lausna sem deiluaðilar eru sáttir við og bera ábyrgð á.
Hugmyndafræði sáttamiðlunar byggir á því að deiluaðilar eru sérfræðingar í sinni deilu og eru því best til þess fallnir að leysa vandann með hjálp hlutlauss sáttamiðlara.
Sáttaferlið tekur almennt stuttan tíma í samanburði við mál sem rekin eru fyrir dómstólum. Þá er kostnaður að jafnaði mun minni og auðveldara er að leysa eða einfalda ágreining áður en deila magnast. Sáttatilraunir veita ríkara svigrúm til fjölbreyttari lausna.
Kostir sáttamiðlunar
Sáttamiðlunarferlið er fljótvirkt, sveigjanlegt og hagkvæmt
Virðing
Trúnaður
Sambandið varðveitt
Fókus á aðila málsins
Lausn deilunnar sett í forgang
Sáttamiðlun er notuð í auknum mæli af fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum. Deilan getur t.d. verið á milli fyrirtækja, vinnuveitanda og starfsmanns, nágranna eða innan fjölskyldna.
Í sáttamiðlun er lausn deilunnar sett í forgang og aðilarnir sjálfir spila stærsta hlutverkið, ólíkt hefðbundnum dómsmálum eða gerðardómsmálum. Sáttamiðlun veitir ákveðið frelsi við lausn ágreinings og eru aðilar ekki bundnir sömu málsmeðferðarreglum og gilda fyrir dómstólum.
Sáttamiðlari aðstoðar aðilana við að skilja stöðu sína, þarfir og sameiginlega hagsmuni, svo aðilar geti komist að sameiginlegri niðurstöðu og samkomulagi. Með sáttamiðlun komast aðilar hjá langdregnum dómsmálum.
Hvernig gengur sáttamiðlun fyrir sig?
Aðilar sammælast um að leysa ágreining sinn með aðstoð sáttamiðlunar
Sáttamiðlari fær staðfestingu á þátttöku aðila
Aðilar og sáttamaður gera með sér samkomulag um sáttamiðlun í upphafi sáttamiðlunar
Sáttafundur hefst með opnun sáttamiðlara um markmið fundarins, hlutverk sáttamiðlara og aðila og umfjöllun um trúnað
Aðilar gera grein fyrir upplifun sinni af ágreiningnum
Farið er yfir hagsmuni, sjónarhorn og þarfir aðila
Mögulegar lausnir settar upp
Umræður um lausnir
Komist er að samkomulagi með samningi aðila
Náist ekki samkomulag getur sáttamiðlari gefið út sáttavottorð sé þess óskað
Sáttamiðlarinn sér til þess að hlustað sé á báða aðila og að þeir fái tíma til að koma fram með sín sjónarmið og tillögur að lausn.

