Sáttamiðlun á vinnustað
Ágreiningur og samskiptavandi geta haft veruleg áhrif á líðan starfsfólks, samstarf og starfsanda. Sáttamiðlun er fagleg og hlutlaus leið til að takast á við slík mál á uppbyggilegan hátt.
Í sáttamiðlun fá aðilar tækifæri til að ræða málin í öruggu rými með aðstoð óháðs sáttamiðlara. Markmiðið er að auka skilning, bæta samskipti og finna leið áfram.
Sáttamiðlun getur nýst vinnustöðum þegar:
samskipti hafa farið í hnút
togstreita eða vantraust hefur myndast
ágreiningur hefur áhrif á samstarf eða teymi
þörf er á að styðja við betri framtíðarsamskipti
Með sáttamiðlun geta vinnustaðir stuðlað að bættum samskiptum, auknu trausti og heilbrigðara vinnuumhverfi.
Leið að betra samstarfi
Sáttamiðlun er leið til að takast á við erfið mál af virðingu, skýrleika og fagmennsku, með það að markmiði að skapa betri grunn fyrir áframhaldandi samstarf aðila.

